Þetta er eitthvað sem ríkið á að gera!!!!!!!!!!!!

Ég er alveg sammála því sem fram kemur hjá ÖBÍ að þetta sé ekki eitthvað sem verklýðshreyfingin og atvinnurekendur eigi að vera að versla með. Það er ábbyggilega margt gott í þessum tillögum en á launafólk að fara að greiða hluta af líeyrisgjölum sínum til að stofna áfallatryggingasjóð og borga sjálft fyrir sinn veikindarétt ? Hvað er það sem atvinnurekendur greiða og annað sem er kannski forvitnilegra, hvað eru þeir að spara sér á þessu ? Það hefur ekki komið fram. Ég er viss um að með þessu þá eru þeir að spara talsvert því að samkvæmt þessu kerfi þá borga þeir 2. mánuði á fullum launum eða staðgengilslaunum og restin er úr áfallatryggingasjóði í allt að 5 ár í heildina. Hins vegar er það í dag þannig að þeir greiða allt að 4. mánuði í veikindum og svo eru allt að 6 mánuðir sem greiðast úr sjúkrasjóði sem atvinnurekendur greiða í og rennur hluti af því lika í áfallatryggingasjóð. Það þýðir í mínum huga bara hagræðingu á kostnaði frá atvinnurekendum til okkar. Við þurfum að fórna 1 % af okkar lífeyrisréttindum og standa undir kostnaði við sjóðinn. Það er ekki mér vitanlega að neitt sem þeir greiða í þennan sjóð sem þeir eru ekki að greiða í dag. Minni veikindaréttur hjá atvinnurekanda þýðir minna fyrir hann að greiða.

Ef einhver er með meira um þetta væri gaman að heyra frá þeim.

Takk 


mbl.is Áfallasjóður áfall fyrir ÖBÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurlaug B. Gröndal

Ég er sammála þér í flestu Gústi af þessu sem þú telur upp. Ég held að það hljóti að vera öllum ljóst að hið opinbera er búið að færa mikið af framfærsluskyldu vegna veikinda og slysa yfir á stéttarfélögin með sjúkrasjóðunum og svo lífeyrissjóðunum.  Atvinnurekendur hafa lengi barmað sér yfir því hversu veikindarétturinn sem mikill hérna og hafa bent á það kerfi sem er í Noregi og Svíþjóð sem er ákveðin takmörkuð greiðsluskylda hjá atvinnurekendum og svo tekur einn stór sameiginlegur sjúkrasjóður við. Fyrstu tveir dagar í veikindum eru ekki greiddir. Gunnar Páll hjá VR kom með tillögur í þessa áttina fyrir fáeinum árum og var svæfð með mjög skjótum hætti. Atvinnurekendur sögðu þá launamönnum að ástæðan fyrir þeim launamuni hér og svo Skandinavíu væri meðal annars vegna þeirrar þyngdar sem hvíldi á þeim hér við greiðslu launa í veikindum. Ef þessu yrði breytt myndu laun hækka hér! Ég trúi ekki þeirri fullyrðingu fyrr en ég sé hana svarta á hvítu.  Hins vegar er plúsinn sem ég sé við þetta er að fólk á síður á hættu með að detta á milli kerfa með því að skipta um starf t.d. milli BSRB og ASÍ, þar er enginn flutningsréttur á milli. En þetta verður að skoða ofan í kjölinn áður en tekin verður endnaleg ákvörðun um breytingar. Lifið heil!

Sigurlaug B. Gröndal, 1.11.2007 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband