Langt er síðan síðast !

Já það er langt síðan að ég bloggaði síðast, en það er margt búið að gerast síðan og það helsta verður talið fram hér. En eins og ég hef sagt áður er ég í dösnkuskóla og eru próf þar á fullu núna, en ég tek ekki próf. Það er vegna þess að ég fer í dönsku í adgangskursusinum í Syddansk-universitiet í Odense. Þess vegna segja þau að ég þurfi ekki að taka próf, en það er þeirra markmið að ég verði tilbúinn fyrir námið. Ég fór í háskólann um daginn til þess að ræða við fulltrúa SU sem er danskur lánasjóður fyrir námsmenn, og ætlaði að kanna hvort að ég gæti fengið lán hjá þeim. Mér var sagt að sækja bara um og sjá hvað kæmi út úr því. Það væri ekki útilokað. Ég mun leita allra leiða til þess að fá lán hér úti, það er nánst vonlaust að lifa á því sem að hægt er að fá hjá Lín, á meðan gengið er svona eins og það er. Þetta á allt eftir að skýrast á næstu vikum. En lífið hér er fínt og það er margt sem að maður þarf að læra, varðandi réttindi og annað. En ég sótti um frípláss á leikskólanum hjá Stefáni Páli og fékk lækkun vegna þess að ég er í námi. Reikningurinn lækkaði úr 1.533 kr og niður í 184 kr. Það er lækkun sem skiptir mann máli, en ekki 200 kr ísl. eins og það var heima. En það skýrist á næstu dögum hvernig þetta verður með adgangskursusinn, á að fá bréf frá skólanum í byrjun des. Þá fæ ég að vita hvenær ég byrja og hvernig þetta verður allt saman.

Hlakka til að fá skemann yfir námið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinþór Ásgeirsson

Gaman að heyra frá þér

ágæt innlegg í Kreppumræðuna

Steinþór Ásgeirsson, 25.11.2008 kl. 12:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband