Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Þetta er málið.

Það er alveg nauðsynlegt að láta þá aðila sem eru að skemma fyrir fjöldanum gjalda fyrir gjörðir sínar.

Gott mál þetta.


mbl.is Dönsk fótboltabulla í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær árangur

Já það er alltaf gaman þegar við eigum afreksfólk í íþróttum, og það er spurning hvort að við ættum að athuga hvort að þessi íþrótt gæti breytt ástandinu í miðbænum. Það að menn séu að berja hvern annan í miðbænum um helgar er eitthvað sem kannski væri hægt að minnka með því að halda keppnir í þessari íþrótt, því að þá væru menn ekki að lemja og berja um helgar í bænum heldur fengju útrás í tímum og á mótum.

Bara smá pæling.


mbl.is Gunnar rotaði breskan sérsveitarmann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkalýðhreyfingin að funda með ríkisstjórn!

Til að leggja fram kröfur til ríkisins vegna komandi kjarasamninga.

Þrátt fyrir að ráðherrar hafi sagt að allt sem verklýðshreyfingin setur sem skilyrði fyrir hóflegum kröfum með það að leiðarljósi að koma ekki af stað óðaverðbólgu.

Fjármálaráðherra segir ekki hægt að setja annað skattþrep, þetta væri bara til hagsbóta fyrir láglaunafólk. 15% skattur á laun undir  200.000 kr.  

Síðan kemur fjárlagafrumvarp og þá á ekki að breyta vaxta, húsnæðis og barnabótum, sem voru líka nefndar sem lykill að samningum.

Þannig að í mínum huga er ríkisstjórnin ekki tilbúin til að liðka fyrir og koma með innlegg sem er gott fyrir almenning.

Svo að því sem ég sagði síðast.

Búið er að fara á nokkra fundi með samtökum atvinnulífsins og það er ekki að heyra á þeim að það sé hægt að hækka laun. Hvernig á að leysa þessi mál ef að hvergi er vilji til að gera neitt og launafólk í landinu á eina ferðina enn að vera ábyrgt. Ég segi bara hvað með fyrirtækin og ríkisstjórnina, eiga þau ekki að taka ábyrgð á neinu ?

Því miður finnst mér eins og verið sé að búa hér til fátækt með markvissum hætti og alltaf kemur það ráðamönnum jafnmikið á óvart að fátækt sé að aukast.

Fyrirtækin eru að vinna í því að halda niðri launum og samtök atvinnulífsins líka og segja ef að þið viljið eitthvað þá hækkar allt.

HALLÓ

ÞAð er allt á fleygiferð og búið að vera það í 2 ár og það er ekki vegna þess að verkalýðsforystan hefur verið að gera miklar kröfur eða hvað.

Skil ekki þessa stefnu á Íslandi og hlakkar mig til að heyra viðtökurnar við kröfum frá ASÍ á morgun.

Lifi byltingin.


Þá byrjar ballið

Já í dag er fundur hjá sáttasemjara.

Þá á að leggja fram kröfur og athuga viðbrögð vinnuveitanda.

Gaman verður að sjá hvernig það gengur og fróðlegt að vita hvernig tekið verður á þessu þar sem ekki er "hægt" að hækka laun hjá okkur.

Læt vita seinna.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband