Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Er ekki búið að vera að funda síðustu daga ?

Og hvað er þá öðruvísi í dag ?

Getur verið að við séum að sjá fram á að fá launahækkun á næstu vikum ?


mbl.is Fundað hjá ríkissáttasemjara í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæti þetta verið enn einn flóttinn frá handrukkun.

Mér dettur alltaf í hug þegar svona kemur upp að verið sé að flýja handrukkara, en það virðist vera skárri kostur hjá þeim sem lenda í svoleiðis málum að grípa til þessa ráðs og láta stinga sér inn. Það sé eina leiðin út úr þeirri klípu sem fólk er komið í. Það er ekki gott þegar staðan er orðin sú.

Takk.


mbl.is Vopnað bankarán í Lækjargötu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta lausnin ?

Hvernig má það vera að fólk sem kemur til landsins og vinnur, borgar skatta og skyldugjöld geti ekki farið til læknis á sama verði og aðrir ? Er eitthvað sem segir að erlendir ríkisborgarar séu öðruvísi en við. Íslendingar eru tryggðir frá upphafi án þess að greiða skatta og annað. Getur verið að það sé verið að segja með þessu að þið greiðið skatta en fáið ekkert fyrir þá, fyrr en eftir 6 mánuði og ef að þið búið á löglegum stað. Því að annars komast þau ekki inn í þjóðskrá. Hver er það sem ber ábyrgð á því að skrá fólk til inn í landið, segja þeim hver réttindi þeirra eru og svo framvegis. Mér finnst þetta vera vandamál, og það að þetta fólk hafi verið að leita á bráðamóttöku LSH er væntanlega bara vegna þess að þau vita ekki hvert á að leita eða er vísað burt af heilsugæslustöðvum vegna þess að ekki eru til staðar heimilislæknar.

Gott mál samt.


mbl.is Sér móttaka opnuð fyrir útlendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband