Skrýtið að reynsla í starfi sé ekki metin á milli sveitafélaga
13.11.2007 | 15:20
Já það er furðulegt að núna fyrst sé verið að meta starfsreynslu á milli sveitafélaga, eins og að það sé ekki sama vinnan á t.d. leikskóla í Reykjavík og Kópavogi eða Mosó ? Það er allt reynt til þess að halda launum niðri.
En það er nú einu sinni þannig að það er metið á milli allra í stjórnendastöðum og öðrum yfirmannastöðum að ég tel en ekki hjá almennu starfsfólki, vegna þess að það er að sliga fyrirtækin að þurfa að hafa fólk í vinnu. Svo er það með kröfur og vill hækka í launum.
Segi bara mikið er gott að þetta sé komið til leiðar og það ekki seinna en á 21 öldinni.
Takk
![]() |
Starfsreysla á leikskólum verður metin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.