Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Voru þeir ekki teknir á staðnum og neita samt ????

Skil ekki alveg hvað þeir eru að spá???

Tel rétt að dæma þá í ævilangt bann frá Íslandi og reka úr landi. Ekki á að halda þeim í fangelsi hér.


mbl.is Minnti á rothögg í boxi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki rétt að breyta til og senda smá fjör???

Það er eitthvað sem maður spyr sig að. Það er búið að senda fullt af ballöðum sem ekki standa undir væntingum, líka sæmilega fjörug lög sem engu skila. Hins vegar hafa þau lög sem bestum árangri náðu verið frekar í hressari kantinum og með góðum dansatriðum ( miðað við þann tíma sem þau voru á ) og nú sýnist mér að Merzedes Club sé að feta þá leið. Líst líka vel á Dr. Spock en tel að það sé of stutt síðan Finnar voru að vinna á rokki.
mbl.is Stjörnurnar styðja Merzedes Club
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blessuð sé minning hans.

Já alveg er það skelfilegt þegar svona gerist. Allt út af veðri og veðurbreytingum. Vona að það verði ekki fleiri óhöpp við Íslandsstrendur vegna þessa. Það eru komin 2 á 2 mánuðum. Það er 2 of mikið.  Af hverju erum við svona berskjöldum fyrir þessu.???
mbl.is Flugmaðurinn 66 ára Flórídabúi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilldin ein

Já það er alveg frábært að koma með smá hvatningu til að nemendur sjái sér hag í að ná árangri. Það getur bara verið gott að hafa svona sjóð í sjónmáli fyrir þá sem eru að leggja í langt nám og eiga kannski ekki mikla möguleika í stöðunni. Getur líka verið sniðugt þar sem verið er að setja markmið um að innan við 10 % verði á almennra prófa, framhalds eða háskóla. Þá getur komið sér vel fyrir fólk að sjá þennan möguleika.

 


mbl.is Afrekssjóður fyrir afburðanemendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn og aftur er Sjálfstæðisflokkurinn að sýna eðli sitt.

Þeim er alveg sama hvað fólki finnst en tekur ekki tillit til þess sem fram kemur í skoðanakönnunum.

Vilhjálmur segir að hann hafi beðist afsökunar á gjörðum sínum, en hvern bað hann afsökunar ? Ekki minnist ég þess að hann hafi beðið kjósendur sína eða borgarbúa afsökunar. Hann hefur kannski beðið borgarfulltrúa í flokknum afsökunar. Það er ekki nóg og það er alveg ljóst að þetta mun skaða flokkinn enn frekar. Það er skrýtin pólitík að ekki sé tekin ákvörðun af flokksstjórn í svona máli. Er hægt að láta mann sem missti algjörlega tökin á málum þegar hann var borgarstjóri og leyfa honum að taka ákvörðun um að taka stólinn aftur, þrátt fyrir vilja fólksins og flokksins.

Skil ekki svona.


mbl.is Vilhjálmur ætlar að sitja áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað veldur því að enginn vill þjálfa ?

Getur það haft eitthvað með stjórnunarhætti HSÍ að gera ?

Það er eiginlega það eina sem mér dettur í hug og því spyr ég, hvað er í gangi og hvers vegna vill enginn taka að sér að þjálfa. Er stefna HSÍ eitthvað sem þarf að skoða ? Eða eru menn að mótmæla einhverju og þá hverju. Heyrst hefur að það vanti stefnu í mál landsliðsins og að Ísland sé eina landið í Evrópu sem ekki er með langtímamarkmið. Það er alltaf verið að taka fyrir mótið sem er í gangi og að sjálfsögðu á að vinna. Það er eins og ekki sé gert ráð fyrir að menn þurfi að spila saman og æfa til þess að geta gert góða hluti. Það varð allt vitlaust þegar Júlíus Jónasson var að gera ákveðnar kröfur til handboltakvenna sem hann vildi að kæmu í landsliðið. Þar var verið að setja kröfur en oft er eins og verið sé að velja nöfn. Það á ekki að vera svo.

Takk


mbl.is Guðmundur harmar ummæli Þorbergs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draga má lærdóm ????

Ég spyr nú bara hver ber ábyrgð????

Það hlýtur að vera ríkið, því að þessi stofnun var á þeirra vegum og það er önnur stofnun barnavernd sem er opinber stofnun sem sendi krakkana þangað. Það er óhætt að segja að þeim börnum var hent úr öskunni í eldinn og líf þeirra lagt í rúst. Ekki vísvitandi en nú þegar þetta er komið upp á yfirborðið þá er það mín skoðun að ríkið bæti það sem hægt er, t.d. með því að kosta sálfræðiaðstoð, eða endurgreiða kostnað við slíka meðferð og jafnvel að greiða miskabætur. Ekki er hægt að bæta þann skaða sem orðinn er og ekki er hægt að borga fyrir brotna sál og hjarta. Hins vegar er eðlilegt að ríkið sem gerandi sjái sóma sinn í að standa undir kostnaði sem af hlaust við sálfræði og geðlæknaaðstoð eða þá að þeir bjóði þá þjónustu fyrir þolendur héðan í frá. Það minnsta.


mbl.is Draga má lærdóm af Breiðavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að gerast ??

Þetta er í annað skiptið á skömmum tíma sem flugvél ferst og þá er spurning um hvað er að gerast. Eru menn ekki í stakk búnir til að fljúga og lenda í hvers kyns veðrum ? Eða er þetta kannski spurning um að vélarnar séu ekki nógu vel hirtar ? Maður spyr sig en hefur ekki svör, skilst að ekki finnist neitt sem hægt er að rannsaka í hvorugu tilfellinu og ekki flugmennirnir heldur. Dularfullt ! 


mbl.is Ekkert sést til vélarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært að heyra.

Það er gott að heyra að bætur samkvæmt almannatryggingum taki hækkun líka því að það veitir ekki af. Svona er nú fínt að tengja þessa hluti við aðra þætti svo að það fylgist að. Vona að það sé einhver sem nýtur góðs af.
mbl.is Bætur hækka um 3 til 4%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyldu þeir hafa sungið Stál og hnífur ?

Það væri djókur dauðanns að þeir syngju það saman. Held að Bubbi sé að verða svolítið blár í annan fótinn. Allavega er ekki sami kraftur í söngtextum hans og lítið um ádeilur.

Bubbi er samt kóngurinn og ég væri til í að syngja með honum hvenær sem er. Þá í þágu SÁÁ


mbl.is Sungið gegn fordómum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband