Smá fréttir
6.3.2009 | 21:39
Já allt á fullu og ekki tími fyrir neitt annað en lærdóm, en það er gaman að vera í námi. Get ekki sagt annað. Ég er alveg að fíla mig í þessu og er að vinna skýrslu í efnafræði og það er ekki neitt smá verk. Við erum 2 að vinna í þessu og það gengur sæmilega, en við höfum ekki gert svona áður. Þess vegna erum við ekki búnir með hana. En við ætlum að hittast á morgun upp í skóla og reyna að klára málið. Anner er allt gott að frétta, ekki kominn með vinnu með skólanum en það kemur. Ég er búinn með fyrsta stílinn í dönskunni og það gekk fínt, erum með stuðningstíma í dönskunni á föstudögum. Það eru bara Íslendingar í þeim tímum. Svo eru stuðningstímar í stærðfræði og efnafræði á miðviku og fimmtudögum sem er bara fínt. Hægt að nota þá ef að maður þarf á að halda. Mér veitir ekki af því að nota alla hjálp sem hægt er að fá. En ég er sáttur við að vera kominn á skólabekk og þegar ég lík þessum áfanga get ég farið á hvaða tæknifræðinám sem er. Það er bara snilld. Ég er að spá í að fara í framleiðslutæknifræði(produktion ingenør). Á eftir að skoða það betur. Sem sagt kátur sem slátur og engan bilbug á mér að finna.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.