Þetta er málið.
11.12.2007 | 15:46
Það er alveg nauðsynlegt að láta þá aðila sem eru að skemma fyrir fjöldanum gjalda fyrir gjörðir sínar.
Gott mál þetta.
Dönsk fótboltabulla í fangelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frábær árangur
11.12.2007 | 15:41
Já það er alltaf gaman þegar við eigum afreksfólk í íþróttum, og það er spurning hvort að við ættum að athuga hvort að þessi íþrótt gæti breytt ástandinu í miðbænum. Það að menn séu að berja hvern annan í miðbænum um helgar er eitthvað sem kannski væri hægt að minnka með því að halda keppnir í þessari íþrótt, því að þá væru menn ekki að lemja og berja um helgar í bænum heldur fengju útrás í tímum og á mótum.
Bara smá pæling.
Gunnar rotaði breskan sérsveitarmann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Verkalýðhreyfingin að funda með ríkisstjórn!
9.12.2007 | 12:09
Til að leggja fram kröfur til ríkisins vegna komandi kjarasamninga.
Þrátt fyrir að ráðherrar hafi sagt að allt sem verklýðshreyfingin setur sem skilyrði fyrir hóflegum kröfum með það að leiðarljósi að koma ekki af stað óðaverðbólgu.
Fjármálaráðherra segir ekki hægt að setja annað skattþrep, þetta væri bara til hagsbóta fyrir láglaunafólk. 15% skattur á laun undir 200.000 kr.
Síðan kemur fjárlagafrumvarp og þá á ekki að breyta vaxta, húsnæðis og barnabótum, sem voru líka nefndar sem lykill að samningum.
Þannig að í mínum huga er ríkisstjórnin ekki tilbúin til að liðka fyrir og koma með innlegg sem er gott fyrir almenning.
Svo að því sem ég sagði síðast.
Búið er að fara á nokkra fundi með samtökum atvinnulífsins og það er ekki að heyra á þeim að það sé hægt að hækka laun. Hvernig á að leysa þessi mál ef að hvergi er vilji til að gera neitt og launafólk í landinu á eina ferðina enn að vera ábyrgt. Ég segi bara hvað með fyrirtækin og ríkisstjórnina, eiga þau ekki að taka ábyrgð á neinu ?
Því miður finnst mér eins og verið sé að búa hér til fátækt með markvissum hætti og alltaf kemur það ráðamönnum jafnmikið á óvart að fátækt sé að aukast.
Fyrirtækin eru að vinna í því að halda niðri launum og samtök atvinnulífsins líka og segja ef að þið viljið eitthvað þá hækkar allt.
HALLÓ
ÞAð er allt á fleygiferð og búið að vera það í 2 ár og það er ekki vegna þess að verkalýðsforystan hefur verið að gera miklar kröfur eða hvað.
Skil ekki þessa stefnu á Íslandi og hlakkar mig til að heyra viðtökurnar við kröfum frá ASÍ á morgun.
Lifi byltingin.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá byrjar ballið
6.12.2007 | 09:28
Já í dag er fundur hjá sáttasemjara.
Þá á að leggja fram kröfur og athuga viðbrögð vinnuveitanda.
Gaman verður að sjá hvernig það gengur og fróðlegt að vita hvernig tekið verður á þessu þar sem ekki er "hægt" að hækka laun hjá okkur.
Læt vita seinna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skattaþrep 1,2 eða fleiri
30.11.2007 | 10:15
Já nú kemur í ljós stefna stjórnvalda í skattamálum, en það er ein af meginkröfum verkalýðshreyfingarinnar sem forsenda fyrir samningum, þar sem settar eru fram"hóflegar"kröfur. Það væri ein mesta kjarabót fyrir þá lægst launuðu að fá skattalækkun en nei, ekki vilja sjálfstæðismenn hlusta á það. Það getur orðið til þess að verkafólkið fær eitthvað út úr samningum.
Ég skil bara ekki þessa stefnu, að hygla þeim sem eiga nóg og refsa þeim sem minnst hafa. Það er nú það sem sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir.
Því segi ég það við eigum að sýna hvað við erum orðin þreytt á þessari stefnu og setja allan þunga samningana á þennan lið og ef að ekki verður gert eitthvað í þessu máli þá verðum við að beyta vopni okkar sem er að afla okkur verkfallsheimildar og fara jafnvel í verkfall.
Það er kannski ekki besti kosturinn eða sá fyrsti en við verðum að gera eitthvað. Ef ekki nú í mesta góðæri sögunnar í langann tíma. Það er kominn tími til þess að við fáum bita af kökunni.
Það er ekki öfundsvert að vera í forsvari verkalýðshreyfingarinnar í þessum samningum en ég er þess fullviss að það verði gert allt sem í þeirra valdi stendur og svo er það okkar að standa við bakið á félögunum. Því það er þannig að félögin erum við og við verðum að berjast fyrir betri kjörum, ekki getum við lagt það á forystuna að taka alla ábyrgðina. Við berum ábyrgð og verðum að standa undir henni.
Því segi ég, látum í okkur heyra og látum vita af því að við erum tilbúin til að taka slaginn.
Lifi byltingin.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svakalega er gott að búa á Íslandi!!
27.11.2007 | 20:15
Já það er nú gott að lífsgæðin eru best á Íslandi, en ég vildi sjá samanburð á kostnaði við framfærslu og samanburð á því innan Evrópu og sjá hvernig það kemur út.
Það er löngu vitað mál að á norðurlöndum sé ekki mikið um háar launakröfur og að það sé miklu meira um að við séum að gera miklar kröfur og að laun hafi hækkað mikið á Íslandi umfram önnur lönd.
Það skyldi þó aldrei vera að það sé vegna þess að það eru talsvert hærri laun á norðurlöndunum og talsvert ódýrara að lifa, matar og fataverð er lægra og einnig er hægt að leita annað til að versla á hagstæðann hátt.
Því kemur það á óvart að það sé best að búa á Íslandi, þrátt fyrir hátt verð á húsnæði. Svo hátt að það er nánast vonlaust að kaupa 3ja herbergja íbúð nema að heimilið hafi 690 þús milli handanna á mánuði, sem þýðir að nánast allt verkafólk og fólk með takmarkaða menntun eigi möguleika á því að eignast húsnæði við hæfi. Svo er ómögulegt fyrir verkafólk að leigja sér húsnæði vegna þess að það kostar nánast mánaðarlaun og kannski rúmlega það ef að fólk þarf að fá stórt húsnæði. Tala nú ekki um verð á eldsneyti sem hækkar alltaf þegar gengið breytist en lækkar ekki að sama skapi.
Því er það mér óskiljanlegt hvar þessi lífsgæði eru að mælast og hverjir voru í þessari mælingu.
Ég er nokkuð viss um að nú er mikið sálfræðistríð vegna komandi kjarasamninga og verið að kveða óánægjuraddir þeirra sem ekki geta lifað á launum sínum og eru að bíða eftir að þeir njóti þess góðæris sem þjóðkjörnir fulltrúar tala um og allir eru að segja frá. Vissulega hefur verið mikið launaskrið á vinnumarkaði, en það er nú bara þannig að það eru ekki allir að njóta þess og það eru einmitt þeir sem síst máttu við því að sitja eftir. Gaman væri að fá tölur frá Hagstofunni til að sjá hvað þarf til að komast af í þessu landi.
Læt þetta duga í bili.
Takk.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Góð skilaboð eða hvað ?
22.11.2007 | 21:07
Já er það von að maður spyrji. Hvað verður næst ? Ef að fyrirtæki er ekki aðili að SA þá þarf ekki að greiða laun samkvæmt kjarasamningum eða hvað. Svo er það þetta að af því að það var verið að greiða svo góð laun að þá er það í lagi að skerða ellilíeyrinn. Þetta er skrýtin ákvörðun en kemur þó ekki á óvart. Það er alltaf þannig að á meðan íhaldið er við völd þá er um að gera að vernda þá sem eiga nóg af öllu á kostnað hinna.
En við lifum í landi þingmannana eins og Bubbi sagði í laginu sínu og við kjósum þetta yfir okkur og kvörtum svo yfir þessu, en engum dettur í hug að standa upp og segja stopp, nei við látum bara vaða yfir okkur á skítugum skónum og segjum svona er lífið. Ekki er það sama gert í Frakklandi ,þó að ég sé ekki að mæla með endalausum verkföllum.
Ég tel hins vegar að þegar við erum beitt misrétti þá eigum við að sniðganga þau fyrirtæki sem gera það, líkt og mér skilst að verið sé að gera við fyrirtæki sem ruddist inn á fund hjá félagi málmiðnaðarmanna og vélstjóra um daginn til að reka sína menn út. Það er fáránleg framkoma að skipta sér af því hvað menn eru að gera í frítíma sínum.
Því segi ég bara þetta, ef að þið teljið að fyrirtæki séu að svína á ykkur, þá komið því á framfæri og sniðgangið fyrirtækið og látið aðra vita af málinu.
Takk.
ÍE ekki bundið af ákvæði kjarasamninga um hækkun lífeyrissjóðsgreiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hey hey segum hóhóhó
20.11.2007 | 09:57
Jæja þá
Nú er komið að því að leggja fram nokkrar spurningar
Hvað er að gerast í kjaramálum og undirbúningi vegna kjarasamninga og hverjar eru kröfurnar ?
Við höfum fengið að sjá kröfur frá sumum samböndum og þær eru með það að markmiði að auka kaupmátt og hækka lægstu laun og það virðist ætla að vera gegnum gangandi hjá öllum, en fróðlegt verður að sjá hvað kemur frá SGS og Flóanum.
Tel að það sé eitthvað á sömu nótum og hjá hinum samböndunum og vona að það verði tekið á lægstu launum og kauptöxtum og einnig að ríkið komi með gott útspil í pakkann. Því að það munar mest um það. T.d. skattalækkun og hækkun á persónuafslætti, hækkun vaxta og barnabóta og margt fleira.
Já það er mikið af spurningum um þessi mál og ég held að þetta verði ekki auðvelt að eiga við vegna þess að það er svo mikil reiði í þjóðfélaginu vegna þessara mála og allra hækkanna sem hafa orðið hjá ráðamönnu og öðrum sem hafa margfaldar tekjur okkar verkafólksins.
Því er ég nokkuð viss um að það verði mikið fjör í komandi kjarasamningum og kannski væri ráð að láta iðnaðarfélögin og verslunarmenn fara fyrst í samninga og sjá hvað kemur út úr því og síðan komi fylking verkfólks og geri aðeins betur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Góðar og gildar kröfur
14.11.2007 | 19:23
Já það er gaman að sjá hvað verið er að setja fram sem kröfur í komandi kjarasamningum og þá með tilliti til baráttu iðnfélaga við það streymi af erlendum starfsmönnum sem verið er að ráða og greiða verkamannalaun og því komið undirboð á markaði. Það er ekki verið að setja allt á annan endann með brjáluðum launakröfum og að gefa skít í allt. Það er verið að koma með kröfur sem tryggja í þessu tilfelli félögum Samiðnar betri afkomu og að ríkið sé dregið til ábyrgðar og eigi líka að koma að málum okkar.
Jú það er nú svo að bilið á milli starfa eftir menntun eða hvort að fólk er stjórnendur eða ekki er orðið allt of mikið og það er orðið þannig að þegar boðið er starf er það aðal "gulrótin" að hægt sé að fá næga yfirvinnu. !!!
HALLÓ það er ekki lengur það sem við viljum og í sumum strfsgreinum er verið að setja lög og reglur tengd EES sem hreinlega banna þessa brjálæðislegu vinnu. Þá er verið að reyna að stuðla að öryggi í umferð og stytta vinnutíma hjá bílstjórum almennt sem eru í langkeyrslu.
Þetta er eitthvað sem þarf að skoða í samhengi og í samvinnu við verkalýðshreyfinguna að mínu mati og einnig samtök atvinnurekanda. Það þarf nefnilega að athuga hvort að ekki sé verið að kippa fótum undan mörgum fjölskyldum.
Svo er það nú yfirlýsing Forsætisráðherra að fólk eigi að halda að sér höndunum í neyslu, og hvað ?
Bara að borða aðra hverja máltíð og greiða bara suma reikninga og ekki stækka íbúðir ef á þarf að halda.
Vona að það komi gott úr þessu.
Takk
Samiðn leggur fram kröfugerð fyrir kjarasamnina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skrýtið að reynsla í starfi sé ekki metin á milli sveitafélaga
13.11.2007 | 15:20
Já það er furðulegt að núna fyrst sé verið að meta starfsreynslu á milli sveitafélaga, eins og að það sé ekki sama vinnan á t.d. leikskóla í Reykjavík og Kópavogi eða Mosó ? Það er allt reynt til þess að halda launum niðri.
En það er nú einu sinni þannig að það er metið á milli allra í stjórnendastöðum og öðrum yfirmannastöðum að ég tel en ekki hjá almennu starfsfólki, vegna þess að það er að sliga fyrirtækin að þurfa að hafa fólk í vinnu. Svo er það með kröfur og vill hækka í launum.
Segi bara mikið er gott að þetta sé komið til leiðar og það ekki seinna en á 21 öldinni.
Takk
Starfsreysla á leikskólum verður metin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)