Tilgangurinn ???
18.2.2008 | 20:15
Feðgar handteknir fyrir líkamsárás | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Góð niðurstaða fyrir þá lægst launuðu.
18.2.2008 | 12:11
Það er alveg ljóst að þetta er að koma þeim best sem eru á lágmarkslaunum og að hinir eru að fá að lagmarki 5,5% hækkun frá síðustu kjarasamningsbundnu hækkun. Það er meira en sést hefur í dágóðann tíma að ég held. Ef að við setjum taxtahækkanirnar í prósentur þá er verið að tala um 30% hækkun á töxtum hjá þeim sem eru innan Flóans og SGS og það er ekki lítið á rúmum 2 árum.
Svo er það sem ríkið kemur með að þessu og þau markmið sem eru sett með þessum samningum um að draga úr verðbólgu. Það á að endurskoða samninginn í febrúar 2009 og þá á verðbólgan að hafa verið undir 5% skilst mér. Nánar má sjá um þetta á heimasíðu Eflingar www.efling.is og svo er frábær viðbót við slysatryggingar þar sem verið er að bæta hressilega inn í samninginn. Nánar á http://asi.is/PortalData/1/Resources/documents/Kynning-Slysatr_170208.pdf Hvet alla til að skoða málið og kynna sér vel hvað þetta er mikilvægt.
Hér eru svo upplýsingar um launabreytingar á töxtum http://asi.is/PortalData/1/Resources/documents/Kynning-LaunTafla_170208.pdf
Svona er það sem þetta virkar og tel ég að gerðir hafi verið góðir samningar sem tryggja það að öryggisnet er að hækka um 38. þúsund krónur á mánuði frá og með 1 janúar til loka október 2010.
Taxtar hækka um 18.000 krónur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú fáum við að sjá hvað ríkisstjórnin er rausnarleg.
15.2.2008 | 11:29
Funda með ríkisstjórninni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þorir einhver að andmæla!!!!!
14.2.2008 | 22:31
Blaðamannafélagið sendir Sjálfstæðisflokki bréf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tímamótasamningar ????????????
14.2.2008 | 20:21
Já er það ekki bara málið. Þetta er rúmlega 30 % hækkun á samningstímanum og lengra orlof. Það er alveg ágætis búbót að mínu mati. 16% í upphafi og svo kemur hitt inn í áföngum. Hlýtur að vera ánægjuefni fyrir íslenskt verkafólk og ég er viss um að þegar við fáum meiri upplýsingar þá munum við sjá hvað þetta er mikill sigur fyrir okkur í erfiðum aðstæðum og mikilli óvissu.
Það kom fram á bloggi í annari grein um meginatriði samninga að það ætti að losa sig við ASÍ og semja um 20% launahækkun, og vil ég benda bloggara á að bíða og sjá áður en dæmt er.
Það er að rætast úr þessum samningum finnst mér og ég held að fólk eigi að hlusta á kynningar og mæta á fundi þar sem þetta verður kynnt, ef að samningar nást á þessum tölum.
Lifi baráttan.
ASÍ og SA á fundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hlakka til að heyra útkomuna
13.2.2008 | 20:35
Já það verður fróðlegt að sjá hvað kemur nú og hvort að SA tekst að eyðileggja samflotið aftur. Skil reyndar ekki alveg af hverju að menn eru að láta SA menn hafa áhrif á hvernig þeir vilja gera hlutina. Eru einhver lög sem segja að SA eigi að stýra þessum viðræðum og að allt skuli unnið á þeirra foesendum. Ég vildi sjá miklu meiri fréttir af því hvernig verklaýðshreyfingin er að gera hlutina, eins og t.d. um áramótin þegar lagt var fram plagg fyrir ríkisstjórnina. Þá var verið að taka frumkvæði og reyna að fá þá að málum fyrr en áður hefur verið gert. Nú á að gera það sama gagnvart SA og segja þetta er það sem við viljum að verði grundvöllur viðræðna og þetta eru tölurnar sem við erum að horfa til. Kannski er verið að gera það á fundum en það er ekki að koma skýrt fram. Góð áróðursvinna sem verið er að vinna hjá Hlíf í Hafnarfirði.
Takk.
Kjaraviðræður fram á kvöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er mikilvægt að fá góðann bita af köku ríkisins.
12.2.2008 | 16:06
Já það er eitthvað sem gæti liðkað til fyrir samningum að ríkið vildi setja eitthvað inn í pakkann. Skattaþrep fyrir láglaunafólk er eitthvað sem við græðum á og hækkuð viðmið í vaxta og barnabótum. Ekki veitir af að bæta hag fólksins sem er að eignast húsnæði og er að ala upp börn.
Legg til að það verði komið með veglegt tilboð frá ríkinu.
Hugsanlega bætt í framkvæmdir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jahérna hér!!!
12.2.2008 | 16:03
Já hvað er annað að segja þegar þetta er allt að gerast, já ég segi gerast.
Er það nema furða að fólk spyrji hvað er að verða sátt um. Það er nú ekki gott afspurnar að það sé verið að ræða allt út frá grunni SA og þeim hugmyndum sem þeir setja fram. Ég get ekki séð að það sé mikið bitastætt í þessum tilboðum frá SA og tel reyndar að nú sé lag að verkalýðshreyfingin leggi fram sambærilegt plagg á þeim forsendum sem við viljum sjá í kjarasamningum byggt á kröfum okkar og láta á það reyna hver viðbrögðin verða.
Tel það mjög mikilvægt fyrir hreyfinguna að láta ekki taka sig í bólinu með það að vera ávallt að elta Vilhjálm Egils í þessu máli. Hann virðist vera að leika sér að því að búa til sundrúng í hópnum og tekst það ágætlega. Vona að það komi eitthvað fram sem er byggt á kröfum okkar.
Takk
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mikið væri nú gott ef samningar nást.
11.2.2008 | 09:10
Bjartsýnir samningamenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er ekki viss um að þetta sé það sem koma skal!!!
6.2.2008 | 15:58
Ég er nú alveg hissa á því að það sé verið að birta þetta og segja að það sé verið að semja á þessum nótum. Ég veit ekki til þess að verið sé að gera kjarasamning sem felur þessar tölur í sér og held að þetta sé bara eitthvað sem rætt hefur verið af hálfu atvinnurekenda.
Tel að ekki sé vert að skoða samning á þessum tölum í því ástandi sem er í dag, launafólk er að gera sér vonir um miklu meiri hækkanir en þetta. Það er alveg ljóst að það er hugur í verkafólki að rétta úr kútnum og fá hækkun sem skiptir máli fyrir þau.
En kannski er það þetta sem atvinnurekendur vilja, verkafólk lepji dauðann úr skel og að þeir hækki yfirmenn, framkvæmdarstjóra og aðra svo um munar. Ráðamenn og aðrir fá líka sitt en þegar á að hækka láglaunafólkið þá er verðbólgan í hættu og ekki má biðja um mikið til að það fari ekki út í verðlagið. Ætli launakostnaður fyrirtækjanna væri ekki í betri stöðu ef að ekki væri verið að greiða þessi háu laun til forstjóra og annara og gera alla þessa starfslokasamninga.
Lifi baráttan.
Áhersla á lægstu launin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)