Hann hefur verið landi og þjóð til sóma.
3.1.2008 | 10:24
Ég er ekki viss um að það verði eitthvað ódýrara að fá annan forseta en ef að það er viljinn þá er tækifærið í sumar.
Mér finnst hann Ólafur hafa staðið sig vel og komið landinu á framfæri og verið fenginn til að gera fullt af hlutum sem að aðrir forsetar hafa ekki verið að gera.
Því segi ég að það á ekki að vera að væla yfir þessum kostnaði því að hann er að skila góðu starfi.
![]() |
Æ dýrara í rekstri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýtt ár komið og þá fer að styttast í kjarasamninga.
3.1.2008 | 10:20
Já og það er verið að boða hækkanir á matvöru að mér skilst hjá birgjum Bónus. Það er ekki hægt að segja að það sé vegna launahækkanna.
Það er nefnilega ekki búið að gera þá og skrýtið ef að það ætti að vera ástæðan. Þá spyr maður sig hvers vegna er verið að hækka núna, er það til þess að tryggja að ekki fáist neitt út úr launaækkunum eða hvað ? Ég get alveg skilið það að það verði breytingar á verði út í heimi en það hefur ekki verið talað um það að ég held. Nú svo er bensín og díesel að hækka eina ferðina enn, og ekki er mikil lækkun orðin á íbúðarhúsnæði. Svo er það alltaf spurning hvað verðbólgan er og verður mikil. Hún er núna tæplega 6 prósent og það er allt of mikið að mínu mati.
Læt þessar pælingar duga í bili.
óska ykkur öllum gleðilegs árs og takk fyrir þau gömlu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)