Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Góð áhöfn í vondu veðri.

En kannski er það furðulegt að áhöfnin þurfi að biðja um þetta en ekki að það sé gert af beiðni yfirmanna. Það er spurning um það hvort að ekki eigi að vera reglur um að þetta sé alltaf í boði fyrir farþegar þegar slíkir atburðir henda. 
mbl.is Farþegum boðin áfallahjálp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona er Ísland í dag.

Sá viðtal við konu um daginn í sjónvarpinu sem var að tala um það sama varðandi Iceland Express og það er alveg ótrúlegt hvað flugfélögin virðast vera illa undirbúin þegar þessi staða kemur upp. Það væri betra að segja frekar lengri tafir og breyta því ef hægt er. Ekki er gaman fyrir fólk sem er að fara í ferðalag að vera í mikilli óvissu, vegna þess að sumir eru að fara lengra og búnir að gera ráðstafanir um framhaldsflug eða lestarferðir.

Það kom í ljós um daginn að margir voru að missa af öðrum ferðum vegna þess að verið var að seinka flugi í smá skömmtum og þá var fólk ekki að breyta bókunum, sem það hefði getað gert ef að vissa væri um langa töf.

Mæli með að flugfélögin taki á þessum málum frekar en að eiga það á hættu að fólk forðist að fljúga með þeimþ 


mbl.is Löggan send á reiða farþega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt dæmið um hættuna !!

Já það er ekki ofsögum sagt að flugeldarnir séu hættulegir, og það er spurning um hver ber ábyrgð á þessu slysi ? Hver var að skjóta upp og skyldi eftir flugeld sem ekki var virkur. Það er bara til að bjóða hættunni heim eins og gerist í þessu tilviki. Hvað ef þetta hefðu verið yngri börn sem þarna komu og hefðu farið að fikta.

Getur verið að sá eða þeir sem voru að skjóta upp verði gerðir ábyrgir fyrir þessu. Það er í flestum tilfellum tekið mjög hart á málunum í Svíþjóð.

Vona að það komi ekki svona alvarlegt slys á Íslandi en maður veit aldrei.


mbl.is Sænskur drengur lést í flugeldaslysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann hefur verið landi og þjóð til sóma.

Ég er ekki viss um að það verði eitthvað ódýrara að fá annan forseta en ef að það er viljinn þá er tækifærið í sumar.

Mér finnst hann Ólafur hafa staðið sig vel og komið landinu á framfæri og verið fenginn til að gera fullt af hlutum sem að aðrir forsetar hafa ekki verið að gera.

Því segi ég að það á ekki að vera að væla yfir þessum kostnaði því að hann er að skila góðu starfi.


mbl.is Æ dýrara í rekstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt ár komið og þá fer að styttast í kjarasamninga.

Já og það er verið að boða hækkanir á matvöru að mér skilst hjá birgjum Bónus. Það er ekki hægt að segja að það sé vegna launahækkanna.

Það er nefnilega ekki búið að gera þá og skrýtið ef að það ætti að vera ástæðan. Þá spyr maður sig hvers vegna er verið að hækka núna, er það til þess að tryggja að ekki fáist neitt út úr launaækkunum eða hvað ? Ég get alveg skilið það að það verði breytingar á verði út í heimi en það hefur ekki verið talað um það að ég held. Nú svo er bensín og díesel að hækka eina ferðina enn, og ekki er mikil lækkun orðin á íbúðarhúsnæði. Svo er það alltaf spurning hvað verðbólgan er og verður mikil. Hún er núna tæplega 6 prósent og það er allt of mikið að mínu mati.

Læt þessar pælingar duga í bili.

óska ykkur öllum gleðilegs árs og takk fyrir þau gömlu.

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband